Hestadagar hefjast með formlegum hætti fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 við Hörpuna. Dagskrá kvöldsins þar verður með eftirfarandi hætti:
· Kl: 19:00 – Fultrúar félaga á höfuðborgarsvæðinu koma
ríðandi að Hörpu með fána sinna félaga og formlega tekið á
móti gestum með fordrykk í anddyri Hörpu. Hestadagar settir
formlega.
· Kl: 20:00 – Hestaat í Hörpu. Hér leiða saman hesta sína Hilmir
Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Boðið
verður upp á nýstárlegt, tónrænt uppistand í Norðurljósasal
Hörpu. Íslenski hesturinn verður skoðaður frá öllum hliðum og
rifjuð upp rysjótt sambúð hans við ótamin náttúruöfl og
brokkgenga þjóð.
Miðinn á Hestaatið kostar kr. 4.000 á midi.is. LH langar hins vegar
að bjóða hestamönnum betri kjör eða miðann á kr. 3.500 ef 10
manns eða fleiri taka sig saman og panta miða sem hópur. Þá verða
miðakaupinn að fara í gegnum skrifstofu LH, hi***@la******.is.
Tilboðið gildir til þriðjudagsins 1. apríl.
Sprettarar, sköpum stemningu fyrir þessum einstaka viðburði í Hörpunni og skellum okkur í bæinn á Hestadaga?
Hlökkum til að sjá ykkur í Hörpu á fimmtudagskvöldið eftir viku!
Stjórn og starfsfólk LH.