Helgina 19. og 20.desember mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska.
Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.
Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.
Námskeiðið verður haldið laugardaginn 19.des og sunnudaginn 20.des. í Samskipahöllinni í Spretti.
Kennslan fer fram í einkatímum, 45mín., báða dagana, á milli kl.9 og 17.
Auk þess er mælst til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.32000.kr pr þátttakenda.
Skráning verður auglýst síðar.
Einnig má geta þess að Anton Páll mun halda annað helgarnámskeið í Spretti í lok janúar sem verður nánar auglýst síðar.
Fræðslunefnd Spretts