Helgina 29. 30. og 31. Janúar 2016 mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska.
Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.
Námskeiðið verður haldið föstudaginn 29.janúar, laugardaginn 30.janúar og sunnudaginn 31.janúar.
Kennslan fer fram í Hattarvallahöllin og Samskipahöllinni
Kennslan fer fram í einkatímum alla dagana.
Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.
Föstudagurinn 29.jan verður kennt 1x30mín einkatími hver nemandi.
Tveir valmöguleikar eru í boði.
2x30mín einkatími – laugardag og sunnudag.
Hentugt fyrir hross sem eru ekki komin í mikla þjálfun.
Möguleiki er á að mæta með sitthvort hrossið í sitthvorn tímann.
1x55mín einkatími – laugardag og sunnudag.
Hentugt fyrir hross sem eru komin í góða þjálfun.
Sama hrossið alla/báða dagana.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.43.000. kr pr þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng
Fræðslunefnd Spretts