Helgarnámskeið með Antoni Páli Níelss. 29.-31.jan 2016

Helgina 29.-31 janúar 2016 mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska.

Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.
Kennslan fer fram í einkatímum.
Auk þess er mælst til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.
Einungis eru í boði 8 pláss.

Verð kr.32000.kr pr þátttakenda
Skráning fer fram í gegnum http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Scroll to Top