Helgarnámskeið með Antoni Páli Níelss. 2.des. og 4.des. 2016

Föstudaginn 2.desember og sunnudaginn 4.desember mun Sprettur halda námskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.
Námskeiðið hefst eftir hádegi á föstudegi og stendur fram á kvöld, ekki verður kennt á laugardeginum en svo mun námskeiðið halda áfram á sunnudagsmorgni og fram eftir degi.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.
Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.

Kennslan fer fram í Hattarvallahöllin.
Kennslan fer fram í einkatímum báða dagana.
Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Tveir valmöguleikar á kennslu eru í boði:
2x30mín einkatími – föstudag og sunnudag
eða 1x60mín einkatími – föstudag og sunnudag.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.32.000. kr pr þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.
http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Fræðslunefnd Spretts

Anton Páll Níelsson
Scroll to Top