Helgarnámskeið með Antoni 6. og 7.janúar 2018

Laugardaginn 6.janúar og sunnudaginn 7.janúar 2018 mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.

Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.

Kennslan fer fram í Húsasmiðjuhöllinni. Kennslan fer fram í einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Tveir valmöguleikar á kennslu eru í boði:
2x25mín einkatími – laugardag og sunnudag
eða 1x50mín einkatími – laugardag og sunnudag.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.32.500 kr. pr. þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.

Næsta helgarnámskeið með Antoni verður haldið í 10.-11.febrúar og þá verður hann með fyrirlesturinn á föstudagskvöldinu 9.febrúrar.

Fræðslunefnd Spretts

Anton Páll Níelsson
Scroll to Top