Helgarnámskeið með reiðkennaranum Sigvalda Lárus Guðmundssyni 28.-29.nóvember 2026. Námskeiðið hentar breiðum hópi hesta og knapa, hverjum og einum verður mætt þar sem hann er staddur og aðstoðað við næstu skref.
Kennt verður í 40mín einkatímum, laugardag og sunnudag, kennt verður í Samskipahöll. Tímasetningar í boði milli kl.8:00 og 16:00. Skráning fer fram á abler.io og opnar skráning miðvikudaginn 28.okt kl.12:00.
Verð fyrir fullorðna er 33.500kr. Verð fyrir unga Sprettara er 27.500kr.
Nánari upplýsingar hjá thordis(hja)sprettur.is
