Skip to content

Helgarnámskeið með Sigvalda

Skráning er enn opin! Nokkur sæti laus!

Helgina 1.-2. febrúar mun reiðkennarinn Sigvaldi Lárus Guðmundsson bjóða upp á helgarnámskeið. Kennt er á laugardegi og sunnudegi í 40mín einkatíma. Á laugardegi og sunnudegi er kennt í Samskipahöll, hólf 3.

Sigvaldi er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og hefur sinnt reiðkennslu við góðan orðstír í fjölda mörg ár. Sigvaldi er einnig reiðkennari ársins 2022 hérlendis.

Hann hefur starfað sem reiðkennari á Hólum og við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri við mjög góðan orðstír, kenndi Reiðmanninn og er nú yfirreiðkennari Hæfileikamótunar LH fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára ásamt því að hafa tamið og þjálfað víða til margra ára.

Kennslan er einstaklingsmiðuð þar sem hverjum og einum verður hjálpað með sín verkefni.

Skráning er opin, hér er beinn hlekkur:

https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mzc0NjU=