Helgarnámskeið með reiðkennaranum Ólafi Andra 21.-22.mars. Kennt verður á Feti. Hesthúsapláss yfir nóttu og öll aðstaða innifalin. Námskeiðið er eingöngu ætlað ungmennum Spretts. Reynt verður að sameinast í bíla og kerrur og öllum sem vilja taka þátt tryggt pláss. Námskeiðið er niðurgreitt af ungmennasjóði. Stefnt er að því að fara aftur í lok apríl til Ólafs Andra. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur.
