Miðvikudaginn 4. júní s.l. kom 6.bekkur Kársnesskóla í heimsókn til hestamannafélagsins Spretts. Þessi heimsókn var hluti af íþrótta- og útivistardögum skólans. Dagskráin var þétt og vel skipulögð. Þórdís Anna Gylfadóttir yfirþjálfari yngri flokka og starfsmaður Spretts var með létta kynningu á hestamennsku og íslenska hestinum í veislusal félagsins. Börnin fengu að spyrja um allt sem þeim lá á hjarta í sambandi við hestinn.
Að því loknu snæddu börnin morgunnesti sitt og gæddu sér jafnframt á bakkelsi og drykknum Klaka frá Lindabakaríi og Rolf Johansen.
Næst færðu börnin sig inn í reiðsalinn þar sem nokkrir ungir Sprettarar voru mættir með fáka sína. Knaparnir riðu um salinn og sýndu gangtegundir íslenska hestsins. Takk ungir Sprettarar fyrir ykkar sýningar.
Rúsínan í pylsuendanum var svo þegar nokkrir Sprettarar mættu með sína traustustu hesta og teymdu undir öllum börnunum.
Þarna fengu allir nemendur að fara á hestbak og fóru flestir marga hringi. Fjölmargir voru að fara í fyrsta sinn á hestbak.
Óhætt er að segja heimsóknin hafi tekist frábærlega. Börnin stóðu sig með sóma og andlitin ljómuðu. Þau voru kurteis, fróðleiksfús og síðast en ekki síst yfirveguð sem skiptir höfuðmáli þegar unnið er með hesta.
Mikill áhugi er hjá báðum aðilum, Kársnesskóla og Spretti, að halda áfram þessu jákvæða samstarfi.