Heimsókn að bænum Auðsholtshjáleigu

Æskulýðsnefndin og Hestamennska ætla næstkomandi mánudag, þann 7.nóvember að fara í rútuferð austur fyrir fjall og heimsækja hrossaræktarbúið Auðsholtshjáleigu. 

Það verður lagt af stað stundvíslega kl.17:00 frá Samskipahöllinni. Skemmtileg ferð á eitt stærsta hrossaræktarbú landins og stuði lofað í rútunni á leiðinni. 

Æskilegt er að taka með sér eitthvað nesti en það verða einnig léttar veitingar í boði.

Sprettskrakkar fá frítt í rútuna en 1000 kr kostar fyrir foreldra ef þeir vilja koma með. Til þess að skrá sig þarf að senda póst á ar*******@ga********.is.
Mikilvægt að skrá sig fyrir hádegi þann 6. nóvember svo hægt sé að panta rútu og allir komist með. 

 

Hlökkum til að sjá ykkur

Scroll to Top