Hádegisfundur hjá ÍSÍ

Miðvikudaginn 5. nóvember verður opin hádegisfundur í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst hann kl.12:10. Þar mun Margrét Sigmarsdóttir upppeldissálfræðingur fjalla um erfið foreldrasamskipti og leiðir til að gera samskiptin árangursríkari.

Farið verður yfir gagnlegar aðferðir í virkum samskiptum, lausnaleit og tilfinningastjórnun. Sjónarhorn þjálfarans verður í brennidepli.

Þátttakan er ókeypis og öllum heimil. Skráning fer fram á sk******@is*.is

Að lokinni framsögu mun verða opið fyrir spurningar úr sal. 

Kær kveðja

ÞÓRARINN ALVAR ÞÓRARINSSON
Verkefnastjóri Þróunar- og fræðslusviðs Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

merki
Scroll to Top