Glódís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum sigruðu Sveiflu Slaktaumatölt – Staðan í liða- og einstaklingskeppninni

Önnur keppnisgrein vetrarins, Sveiflu slaktaumatölt í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts fór fram í gær.
Það var gaman að sjá hversu mörg lögðu leið sína í Samskipahöllina um kvöldið og myndaðist skemmtileg stemning í stúkunni.

Það var Sveifla sem styrkti þetta slaktaumatölt og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.
Sveifla er nýtt vörumerki úr Skagafirði sem leggur áherslu á vandaðar og endingargóðar vörur fyrir hest og knapa – allt frá mélum til fatnaðar og reiðtygja. Vörurnar eru þróaðar í beinu samtali við hestamenn, þar sem gömlu góðu gæðin mæta nútímalegri hugsun. Vöruúrvalið má sjá á sveifla.is

Það voru þau Glódís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum sem leiddu eftir forkeppnina og sýndu þau styrk sinn og héldu forystunni eftir sterk A-úrslit. Einkunnin hvorki meira né minna en 7,29. Þar á eftir komu Gunnar Már Þórðarson og Júpíter frá Votumýri 2 og því næst Hrönn Ásmundsdóttir og Rafn frá Melabergi

A-úrslit verðlaunaafhending
Glódís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum voru öryggið uppmála á slaka taumnum

 

Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir sigraði B-úrslit eftir dómararöðun á hesti sínum Hnokka frá Áslandi með einkunnina 6,54. Jafnir þeim voru Rúnar Bragason og Andi frá Skálakoti.

Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir og Hnokki frá Áslandi

 

Það var lið Fossvéla sem hlaut liðaplattann, annað mótið í röð. Glæsilegt það. Fyrir hönd liðsins kepptu Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson og Þórdís Sigurðardóttir.

Stigahæsta liðið, Fossvélar og þjálfari þeirra Viðar Ingólfsson í verðlaunaafhendingu.

Sjálfboðaliði kvöldsins var Margrét Kjartansdóttir og gaf Sprettur henni gjafabréf í Lífland. Margrét stóð vaktina í dyragæslu inn í höll til að tryggja að knapar og hestar yrðu ekki fyrir truflun í braut. Svona viðburðir gætu ekki orðið að veruleika án öflugra sjálfboðaliða. Takk öll sem tóku þátt í að gera þetta kvöld að veruleika.

Sjálfboðaliði kvöldsins – Margrét Kjartansdóttir

 

Eftir tvær keppnir eru línur aðeins farnar að skýrast bæði í liða- og einstaklingskeppni. Það er þó nóg af stigum eftir í pottinum.

Svona er staðan eftir tvær greinar:

 

 

 

 

Við sjáumst aftur föstudaginn 20. mars en þá er keppni í fimmgang í boði Brokk

Höfundur: Selma Rut Gestsdóttir

Scroll to Top