Norðurlandamótið í hestaíþróttum fór fram á Margaretehof í Svíþjóð dagana 4.–9. ágúst. Sprettur átti þrjá unga og efnilega knapa í íslenska landsliðshópnum, þær Heklu Rán Hannesdóttur, Elvu Rún Jónsdóttur og Guðnýju Dís Jónsdóttur, og stóðu þær sig allar með prýði á stóra sviðinu.
Hekla Rán og Tindur
Hekla Rán Hannesdóttir og Tindur frá Árdal áttu frábært mót. Þau kepptu í B-flokki ungmenna, tölti T1 og fjórgangi V1.
Í tölti T1 voru þau í þriðja sæti eftir forkeppni með 6,83 í einkunn og tryggðu sér þar með beint sæti í A-úrslitum. Þar gerðu þau enn betur og hlutu glæsilega 7,50 í einkunn sem tryggði þeim 2. sætið og silfurverðlaun á Norðurlandamótinu.
Ekki var árangurinn síðri í B-flokki ungmenna. Hekla og Tindur tryggðu sér sæti í A-úrslitum og þar sýndu þau frábæra frammistöðu. Þau enduðu í 2. sæti með 8,79 í einkunn.
Í fjórgangi V1 varð parið hins vegar fyrir óheppni þegar Tindur missti skeifu í stökksýningunni og hlutu þau því ekki einkunn.
Tvö silfur á Norðurlandamóti er stórglæsilegur árangur hjá Heklu Rán og Tindi!

Elva Rún og Kvasir
Elva Rún Jónsdóttir og Kvasir frá Steinnesi kepptu í tölti T1 og fjórgangi V1.
Í forkeppni T1 hlutu þau 6,50 í einkunn og tryggðu sér sæti í B-úrslitum. Þar mættu þau ákveðin til leiks, sigruðu B-úrslitin með 7,17 í einkunn og unnu sér þar með sæti í A-úrslitum.
Í A-úrslitunum héldu þau áfram að standa sig frábærlega og enduðu í 4. sæti með 7,17 í einkunn. Ísland átti þar fjóra efstu knapana og var því sannarlega íslensk stemning á toppnum.
Í fjórgangi V1 hlutu Elva Rún og Kvasir 6,70 í forkeppni og tryggðu sér sæti í B-úrslitum. Að úrslitum loknum höfnuðu þau í 9. sæti.
Frábært mót hjá Elvu Rún og Kvasi og ekki síst glæsilegt að vinna sig alla leið úr B-úrslitum og upp í 4. sæti í tölti T1 á lánshesti.

Guðný Dís og Laki
Guðný Dís Jónsdóttir og Laki från Adalgården kepptu einnig fyrir Íslands hönd í tölti T1 og fjórgangi V1.
Þau komust ekki áfram í úrslit að þessu sinni en fengu dýrmæta reynslu af keppni með íslenska landsliðinu á Norðurlandamóti.
Það er mikið afrek eitt og sér að vinna sér sæti í landsliðshópi Íslands og keppa fyrir hönd lands og félags á stórmóti sem þessu.

Sprettur getur verið afar stoltur af ungu knöpunum sínum. Hekla Rán, Elva Rún og Guðný Dís voru félaginu til sóma og komu heim ríkari af reynslu.
Innilega til hamingju Hekla Rán, Elva Rún og Guðný Dís með glæsilega frammistöðu á Norðurlandamótinu!
