Gjafir til félagsins á vígsluhátíð

Hestamannafélagið Sprettur vill þakka fyrir allar þær gjafir og þær kveðjur sem bárust félaginu á vígsludegi reiðhallar Spretts. Fyrir áhugasama þá má sjá lista yfir gjafir hér að neðan.

  • Kvennadeild Spretts gaf Carat borðbúnaður úr þýsku gæðapostulíni fyrir 150 manns.
  • Límtré Vírnet gaf Spretti hringgerði sem staðsett er fyrir utan nýju höllina.
  • Inter gaf Spretti hjartastuðtæki sem staðsett verður í nýju reiðhöllinni.
  • Halldór Halldórsson gaf Spretti málverk.
  • Hestamannafélagið Fákur gaf samlokugrill og veggklukku.
  • Félag tamningamanna gaf veggklukku
  • Hestamannafélagið Hörður gaf sögu Harðar og Harðarfélaga.
  • Hestamannafélagið Sörli gaf Spretti listaverk.
  • Hestamannafélagið Sóti gaf Spretti listaverk.
  • Landssamband hestamanna gaf áritaðan skjöld og blóm.
  • Ljósmynd af höllinni og hverfinu um vígsluhelgina frá Henrik Johannsson iSky.

Auk þess bárust blóm og hamingjuóskir frá Hestamannafélaginu Mána, Hestamannafélaginu Freyfaxa, Brimfaxafélögum í Grindavík, Arionbanka og Félagi hrossabænda.

kakan Sprettur
Scroll to Top