Gæðingamót Spretts verður haldið dagana 12. -15. júní 2026 á félagssvæði Spretts. Mótið er einnig úrtaka fyrir Landsmót 2026. Boðið verður upp á tvær umferðir úrtöku. Skráning í seinni umferð er valkvæð. Skilyrði fyrir skráningu í seinni umferð er að parið hafi verið skráð til keppni í fyrri umferð. Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr fyrri eða seinni umferð.
Gæðingakeppnin eru eingöngu fyrir Sprettsfélaga í yngri flokkum og eigendur hesta í A- og B-flokki þurfa að vera Sprettsfélagar, þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða.
DRÖG að dagskrá Gæðingamóts Spretts
Föstudagur 12. júní
18:00 A-flokkur ungmenna
18:45 A-flokkur áhugamanna
19:30 B-flokkur áhugamanna – sérstök forkeppni
21:00 Dagskrárlok
Laugardagur 13. júní
9:00 Barnaflokkur
10:00 Unglingaflokkur
11:30 MATARHLÉ
12:30 Ungmennaflokkur
13:30 B-flokkur
15:30 Kaffihlé
16:00 A-flokkur
18:00 Dagskrárlok
Að forkeppni lokinni verður opnað fyrir skráningar í seinni umferð úrtöku sem verður
mánudagskvöld 15. júní fyrir þá sem vilja. Skilyrði er að parið hafi verið skráð í fyrri
umferð, en þátttaka í fyrri umferð er ekki skilyrði fyrir þátttöku í seinni umferð.
Sunnudagur 14. júní
12:00 Pollaflokkur
13:00 A-úrslit Barnaflokkur
13:40 A- úrslit Ungmennaflokkur
14:20 A- úrslit Unglingaflokkur
15:00 A-úrslit B-flokkur áhugamanna
15:40 A- úrslit B-flokkur
16:20 A- úrslit A-flokkur ungmenna
17:00 A-úrslit A-flokkur áhugamanna
17:30 A- úrslit A- flokkur
17:40 Dagskrárlok
Mánudagur 15. júní
Dagskrá verður birt að skráningum loknum í seinni úrtöku.
18:00 Seinni umferð í gæðingaflokkum
-Barnaflokkur
-Unglingaflokkur
-Ungmennaflokkur
-B-flokkur + B-flokkur áhugamanna
-A-flokkur áhugamanna + A-flokkur ungmenna + A-flokkur
Skráning
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og verður opin til miðnættis þriðjudagskvöldið 8. júní. Skráningargjöld:
– Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur 8000kr
– A og B flokkar 12.000kr
Sprettur hefur rétt á að senda 12 knapa í hverjum flokki til keppni á Landsmóti hestamanna 2026. Þar að auki hefur Sprettur rétt á að senda 6 knapa í sýningargreinar Landsmóts sem eru A flokkur ungmenna og B flokkur áhugamanna. Nánar um sýningargreinar má lesa hér: Sýningargreinar | Landsmót Hestamanna 2026
Allar afskráningar skulu fara fram í gegnum netfangið mo*@******ur.is
Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður glæsilegasta parið valið.
Við hvetjum Sprettara til þess að mæta í félagsbúning Spretts til keppni.
Félagsbúningur Spretts er hvítar reiðbuxur, svartur jakki, hvít skyrta og silfurlitt bindi.
Svansstyttan er veitt Sprettsfélaga sem klæðist félagsbúningi Spretts á mótum og þykir ávalt vera til fyrirmyndar hvað varðar prúðmannlega reiðmennsku, klæðaburð og hirðingu hests, utan vallar sem innan. Svanstyttan er veitt til heiðurs Svani Halldórssyni, stofnfélaga Gusts og síðar Spretts. Svanur lagði mikið upp úr því að vera prúðbúinn, snyrtilegur og á vel hirtum hesti.
Topphestastyttan er veitt í minningu Jónínu Guðbjargar Björnsdóttur í Topphestum. Þau verðlaun eru veitt knapa í yngri flokkum sem mætir til keppni á vel hirtum hesti og sýnir góða reiðmennsku.
Við óskum eftir að farandgripum verði skilað sem allra fyrst upp á skrifstofu Spretts.
Vinsamlegast heyrið í Berglindi upp á móttöku bikara í síma 620 4500.
