Gæðingamót Spretts

Gæðingamót Spretts fer fram dagana 1. – 2. júní nk.
Keppt verður á gæðingavellinum og skeiðbrautinni Andvara megin
Skráning hefst fimmtudaginn 23.maí og fer fram á sportfengur.com og lýkur stundvíslega   á miðnætti  mánudagskvöldið 27.maí  Ekki er tekið við skráningum eftir þann tíma.
Skráningargjöld er 3500 kr. Þeir sem velja millifærslu eru beðnir að senda kvittun á netfangið ka***@hi.is

Boðir verður upp á eftirfarandi flokka

 A-flokk gæðinga
 A-flokk gæðinga áhugamenn
 B-flokk gæðinga
 B- flokk gæðinga áhugamenn
 Ungmenni
 Unglingar
 Börn
 Skeið 100m, 150m

Áhugamenn í A og B flokki ríða með reyndari knöpum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 2. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á ka***@hi.is (knapi + hestur + keppnisflokkur).

Vinsamlega veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Sprettsfélaga. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni og þá sérstaklega

 reglur varðandi keppnishesta / réttindi til skráningar
 reglur varðandi fótabúnað, beislisbúnað og útbúnað knapa
 járningar

Mótanefnd vill einnig auglýsa eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna.

Meðfylgjandi mynd er tekin af Jónínu Björk Vilhjálmsdóttur, af úrslitum í fimmgangi á íþóttamóti Spretts síðastliðna helgi. Á myndinni er Hans Þór Hilmarsson og Tígulás frá Marteinstungu en þeir sigðurðu með e. 7,05.

Scroll to Top