Gæðingamót og úrtaka fyrir LM2014

Síðasti skráningadagur er klukkan 18:00  þriðudaginn 28 maí.

Gæðingamót Spretts fer fram dagana 31.05 – 01.06 2014. Skráning fer fram á Sportfeng. Skráning hefst föstudaginn 23.5 og lýkur stundvíslega kl 18 þriðjudag 27.5.

Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 4.000 en fyrir börn og ungingar kr 2.000. Skráningargjald fyrir skeiðgreinar er kr 3.000.

Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk verða að tilkynna það með því að senda póst á mo*******@sp********.is

Boðir verður upp á eftirfarandi flokka:

 A-flokk gæðinga
 A-flokk gæðinga áhugamenn
 B-flokk gæðinga
 B- flokk gæðinga áhugamenn
 Ungmenni
 Unglingar
 Börn
 Skeið 100m, 150m, 250m
 Pollar

Á gæðingamótinu verður boðið upp á sérstakan flokk fyrir vana polla. Pollum er ekki sætaraðað en allir frá þátttökuverðlaun. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum. Pollar þurfa ekki að skrá sig í gegnum Sportfeng heldur á staðnum.

Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður gæðingur mótsins valinn sem og knapi mótsins. Áhugamenn í A og B flokki ríða með reyndari knöpum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 1. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á mo*******@sp******.is (knapi + hestur + keppnisflokkur).

Vinsamlega veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Sprettsfélaga. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni og þá sérstaklega.

 reglur varðandi keppnishesta / réttindi til skráningar
 reglur varðandi fótabúnað, beislisbúnað og útbúnað knapa
 járningar

Mótanefnd auglýsir eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna.

Með kveðju
Mótanefnd Spretts

Meðfylgjandi mynd er af Gormi frá Efri-Þverá og Sigurði V. Matthíassyni en þeir félagar sigruðu fimmgangin á Íþróttamóti Spretts sem fram fór síðustu helgi. 
Siggi Matt og Gorumur frá Efri-Þverá
Scroll to Top