Fyrstu vetrarleikar Spretts 2016

Fyrstu vetrarleikar Spretts fara fram sunnudaginn 14.febrúar kl.13:00 og verða þeir haldir í Samskipahöllinni.
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:

Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn (10-13 ára)
Unglingar (14-17 ára)
Ungmenni (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (50 ára +)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. 
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu. Um er að ræða miða á Stóðhestaveisluna sem haldin verður 9. apríl ásamt farandbikar sem gefinn er af styrktaraðila.

1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.
Skráning fer fram á milli 11 og 12 á mótsdag og boðið verður upp á vöfflur á vegum Kvennadeildarinnar.

Mótanefnd vonast til að sjá sem flesta á sunnudaginn 14.

Scroll to Top