Fyrstu vetrarleikar Spretts

Fyrstu vetrarleikar Spretts verða haldnir laugardaginn 22. febrúar. Skráning fer fram í anddyri Reiðhallarinnar milli klukkan 11-12. Hægt er að kaupa hressingu og kaffi meðan á skráningu stendur. Vöfflur verða í boði fyrir þátttekendur meðan á skráningu stendur.

Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðargangur.

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti.

Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.

Mótið hefst kl 13:00

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:

  • Pollar (9 ára og yngri) – teymdir Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
  • Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
  • Börn – meira keppnisvön (10-13 ára)
  • Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
  • Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
  • Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
  • Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
  • Konur II – minna keppnisvanar
  • Karlar II – minna keppnisvanir
  • Heldri menn og konur (60 ára +)
  • Konur I – meira keppnisvanar
  • Karlar I – meira keppnisvanir
  • Opinn flokkur (karlar og konur)

Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Scroll to Top