Fyrstu vetrarleikar ársins

Fyrstu vetrarleikar Spretts fara fram laugardaginn 7.febrúar kl.13:00. 

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:

  • Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
  • Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
  • Börn (10-13 ára)
  • Unglingar (14-17 ára)
  • Ungmenni (18-21 árs)
  • Konur II – minna keppnisvanar
  • Karlar II – minna keppnisvanir
  • Heldri menn og konur (50 ára +)
  • Konur I – meira keppnisvanar
  • Karlar I – meira keppnisvanir
  • Opinn flokkur (karlar og konur)

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

  • 1.sæti gefur 10 stig
  • 2.sæti gefur 8 stig
  • 3.sæti gefur 6 stig
  • 4.sæti gefur 4 stig
  • 5.sæti gefur 2 stig
  • 1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt

Keppni í polla- og barnaflokki mun alltaf fara fram inni í Sprettshöllinni. Fyrsta mótið verður haldið inni í frábæru reiðhöllinni okkar. En staðsetning annarra vetrarleika verður auglýst þegar nær dregur þeim mótum og mun veðrið og færð ráða því vali

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr. Skráning fer fram á milli 11 og 12 á mótsdag

Styrktaraðili vetrarleika 2015 er Ölgerðin

Mótanefnd vonast til að sjá sem flesta á laugardaginn.

Vetrarleikar 2 2014 opinn flokkur
Scroll to Top