Fyrirlestur og æfingamót ungra Sprettara

Fyrirlestur um þátttöku á gæðingamóti verður haldinn þriðjudaginn 27.maí í veislusal Spretts kl.19:30. Þórir Örn Grétarsson gæðingadómari fer yfir fyrirkomulag gæðingakeppni, reglur og allt það helsta sem tengist keppninni. Foreldrar eru hvattir til að mæta með! Fyrirlesturinn er ókeypis og það er bara að mæta, engin skráning. Léttar veitingar í boði.

Einnig mun æskulýðsnefnd og yfirþjálfari yngri flokka fara yfir fyrirkomulag og aðstöðu ungra Sprettara á Landsmótinu á Hólum.

Æfingamót ungra Sprettara verður haldið miðvikudaginn 28.maí á Samskipavellinum og hefst ca.kl.17. Gæðingadómari dæmir æfingamótið og gefur bæði einkunn og skriflega umsögn til allra keppenda. Einkunn og umsögn er sent til hvers og eins í sér skilaboðum í gegnum abler. Frábær æfing og undirbúningur fyrir þátttöku í gæðingakeppni.
Æfingamótið er ókeypis fyrir alla unga Sprettara sem stefna á þátttöku á gæðingamóti Spretts og úrtöku fyrir Landsmót. Byrjað verður á keppendum í barnaflokki, svo unglingaflokki og endað á keppendum í ungmennaflokki. Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og er opin. Nauðsynlegt er að skrá sig (ekki verður hægt að bæta við á staðnum) – skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 25.maí. Allar nánari upplýsingar á thordis(hja)sprettur.is

Scroll to Top