Fyrirlestraröð fyrir unga Sprettara!

Keppnistímabilið er í þann mund að hefjast af fullum krafti á Landsmótsári og því er mikilvægt að hnykkja á þeim reglum sem gilda í keppni og mikilvægum atriðum sem snúa að keppnisparinu. Haldin verður fyrirlestraröð, sameiginlega með hestamannafélaginu Fáki. Sjá nánar hverjir eru fyrirlesarar og hvenær hér fyrir neðan.

Við hvetjum alla unga Sprettara – börn, unglinga og ungmenni – til að skrá sig og undirbúa sig fyrir keppnirnar sem framundan eru. Reglurnar taka breytingum og því er mikilvægt að halda sér á tánum og fylgjast vel með. Foreldrar eru velkomnir með, sérstaklega börnum.

Ath að það þarf að skrá sig í fyrirlestraröðina, skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og kostar ekki neitt.

1) Föstudaginn 27. febrúar kl.17:15 -18:15 í veislusalnum í Lýsishöllinni. Halldór Gunnar Victorsson íþróttadómari – Hvað eru íþróttadómarar að hugsa? Halldór fer yfir lög og reglur, dómsskalan, hvað eru góðar sýninga, hvað telst til hækkunar á sýningu og allt sem viðkemur keppni í íþróttakeppni.

2) Föstudaginn 27. Mars kl. 16:00-17.00. Hreiðar Haraldsson. Afrekshugarfar – hvað einkennir hugarfar frammúrskarandi einstaklinga. Hreiðar mun ræða um markmiðasetningu og fókus til að bæta framfarir og skuldbindingu við íþróttina í daglegu lífi.

3) Mánudaginn 11. maí (tímasetning auglýst betur síðar) í veislusalnum í Lýsishöllinni.
Fyrirlestur með gæðingadómaranum Sigríði Pétursdóttur fyrir þá sem stefna á úrtöku fyrir Landsmót.

Scroll to Top