Fulltrúar Spretts á Landsmóti 2026 – staðfesting þátttöku

Að loknu glæsilegu gæðingamóti og úrtöku í Spretti hefur komið í ljós hvaða knapar og hestar hafa tryggt sér rétt til að keppa fyrir Hestamannafélagið Sprett á Landsmóti 2026 og hér að neðan má sjá þá knapa og hesta sem hafa tryggt sér rétt til að taka þátt fyrir hönd Spretts.

Að þessu sinni hefur Sprettur rétt á því að senda 12 knapa úr hverjum flokki á Landsmót hestamanna 2026. Þar að auki á félagið rétt á að senda 6 knapa í B flokki áhugamanna og A flokki ungmenna
Hestamannafélagið Sprettur sér um að skrá þátttakendur félagsins í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, B flokki og A flokki og sýningargreinum.

Við óskum eftir því að fá staðfestingu frá knöpum eða eigendum hvort þeir ætli að þiggja sætið á Landsmóti og þar með taka þátt fyrir hönd Spretts, eigi síðar en næstkomandi laugardag 20. júní 2026
Senda þarf kennitölu knapa, IS númeri hests og upp á hvora höndina þeir ætla að ríða sérstaka forkeppni á Landsmóti á motaskraning(hja)sprettur.is fyrir lok laugardagsins 20. júní. Við hvetjum knapa til að staðfesta þátttöku fyrr en seinna til að hægt sé að láta varaknapa vita komi til þess.
Knapar í yngri flokkum geta einungis tekið þátt með einn hest og þeir knapar sem tóku þátt með fleiri en einn hest í úrtöku þurfa að velja hvern þeir kjósa að fara með á Landsmót.
Á Landsmóti er riðin sérstök forkeppni þar sem 3 knapar eru saman í holli. 30 efstu knapar í hverjum flokki fara áfram í milliriðla en þar ríða knapar sitt prógram einir á vellinum. Nánar má lesa um fyrirkomulag keppni á Landsmóti í kafla 8 í reglum um gæðingakeppni: (GK)Reglur_um_gæðingakeppni__maí-090525.pdf

Einnig er óskað eftir staðfestingu á því hjá yngri flokkum hvort óskað sé eftir aðstoð með pláss fyrir hrossin.

Varðandi hesthúspláss á Hólum yfir Landsmót þá hefur Hesthúsnefnd Landsmóts ákveðið að stíum á Brúnastöðum verði úthlutað eftir fjölda þeirra sem hvert hestamannafélag getur komið með í hvern flokk sem er 12 hjá Spretti.
Hugmyndin er  að keppendur í barnaflokki, sem keppa á sunnudagsmorgni, geta komið með sinn hest að kvöldi laugardagsins 4. júlí, geymt hestinn yfir nóttina, keppt um morguninn og farið síðan af staðnum svo næsti hestur, keppandi í unglingaflokki sem er seinna um daginn, geti komið í stíuna.
Eftir forkeppni má vænta annars skipulags þar sem rýmka ætti í hesthúsunum eftir forkeppni. Hesthúsnefnd Landsdmóts kynnir þá útfærslu þegar nær dregur.

Áhersla er lögð á að hestar séu með hesthúsapláss í firðinum og ef einhverjir eru í vandræðum má senda tölvupóst á ingunn(hja)landsmot.is og reynt verður eftir bestu getu að aðstoða.

Knapar og hestar sem hafa tryggt sér þátttökurétt á Landsmóti hestamanna 2026:

Barnaflokkur
1. Eyvör – Hagur 8.68/Fáfnir 8.41
2. Harpa – Straumur 8.48
3. Birkir – Laufi 8.36
4. Sigursteinn – Hrynjandi 8.32
5. Patrekur – Vík 8.30/Komma 8.26
6. Þóra Karls – Bruni 8.23
7. Heiður Inga – Rjóð 8.22
8. Ómar Björn – Sólarorka 8.21 / Arna 8.01
9. Hafdís Járnbrá – Ísafold 8.13 /Asi 8.12
10. Ísar – Tindur 8.11
11. Erla Dís – Grafík 7.97

Unglingaflokkur
1. Kristín Rut – Straumur 8.74
2. Apríl Björk – Sikill 8.54/Lilja 8,52
3. Hilmir – Grímur 8,54
4. Kári – Gýgjar 8.53
5. Íris Thelma – Runi 8.48/Skuggi 8,30/Ögri 8,28
6. Jóhanna Sigurlilja – Radíus 8,46/ Bláskeggur 8.33
7. Elena – Styrkur 8.42/Sól 8.26
8. Milla – Skorri 8.38
9. Lilja Berg – Haukur 8.38 /Óskadís 8,32
10. Jóhann Dýrleif Sól 8.30
11. Ragnar Dagur Stormur 8.29/ Riddari 8.24
12. Lilja Guðrún Hátið 8.20
Varaknapi
Rafn Alexander 8.19

B flokkur ungmenna
1. Guðný Dís – Goði 8.71/Brandur 8.40
2. Hekla Rán – Tindur 8.69/ Dimmir 8.59
3. Anika – Dáðhugi 8.67
4. Ásta Hólmfríður – Garri 8.63
5. Elva Rún – Björt 8.59/Ás 8.49
6. Herdís Björg – Þór 8.55
7. Hulda Inga – Bliki 8.52/Ægir 8,24
8. Ragnar Bjarki – Muninn 8.43
9. Ásdís Mist – Ágæt 8.37
10. Þórdís Agla – 8.15
11. Inga Dís – Ástríkur 8.01
12. Katla Grétars – Hildur 7.90

B flokkur
1. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk – Glódís Rún Sigurðardóttir 8.82
2. Fálki frá Traðarlandi – Sigurður Baldur Ríkharðsson 8.70
3. Brynja frá Eystri-Hól – Ævar Örn Guðjónsson 8.54
4. Hrafn frá Vatni – Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir – 8.51
5. Dís frá Eystri-Hól – Ævar Örn Guðjónsson 8.50
6. Lilja frá Eystri- Hól – Ævar Örn Guðjónsson 8.50
7. Kolskeggur frá Kjarnholtum I – Sigurður Sigurðarson 8.50
8. Ísar frá Vatnsleysu – Ævar Örn Guðjónson 8.50
9. Auður Frá Hamarsey – Hekla Rán Hannesdóttir 8.49
10. Hnjúkur frá Meðalfelli – Hafþór Hreiðar Birgisson 8.47
11. Áhugi frá Ytra-Dalsgerði – Anna Þöll Haraldsdóttir 8.46
12. Glans fá Íbishóli – Ólafur Andri Guðmundsson – 8.45
Varahestur
Jökull frá Þingbrekku – Sunna Sigríður Guðmunsdóttir 8.42

A flokkur
1. Hraundís frá Selfossi – Viðar Ingólfsson 8.67
2. Krókur frá Kambi – Viðar Ingólfsson 8.54
3. Tromma frá Kjarnholtum – Sigurður Sigurðarson 8.53
4. Móeiður frá Feti – Ólafur Andri Guðmundsson 8.47
5. Funi frá Bjarnarnesi – Hafþór Hreiðar Birgisson 8.47
6. Bergdís frá Ferjubakka – Jón Herkovic 8.31
7. Vörður frá Narfastöðum – Brynja Pála Bjarnadóttir 8.12
8. Mósart frá Gafli – Magnús Kristinsson 8.04
9. Geisli frá Gafli – Þórarinn Ragnarsson 7.98
10. Svalur frá Gafli – Magnús Kristinsson 7.97
11. Rauðskeggur frá Kjarnholtum – Sigurður Sigurðarson 7.91
12. Galdur frá Kerhóli – Guðrún Margrét Valsteinsdóttir 7.82

B flokkur áhugamanna
1. Hannes Sigurjóns – Heiður 8.57
2. Ríkharður – Konsúll 8.55
3. Hulda María – Lifri 8.55
4. Auður Stefáns – Sproti 8.54/Sara 8.48
5. Valdimar – Afródíta 8.54
6. Erna – Kveikur 8.40
Vara hestur
Ragnhildur Sveinsdóttir og Léttir 8.35

A flokkur ungmenna
1. Apríl Björk Þórisdóttir – Esja frá Miðsitju 8.44
2. Herdís Björg Jóhannsdóttir – Skorri frá Vöðlum 8.43
3. Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir – Gustur frá Efri-Þverá 8.37
4. Ragnar Dagur Jóhannsson – Öxi frá Hvammi 8.28
5. Anika Hrund Ómarsdóttir – Hraunar frá Hólaborg 8.26
6. Lilja Guðrún Gunnarsdóttir – Hátíð frá Söðulsholti 8.22 /fyrri 8.12
Varaknapi
Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson – Reginn frá Lunansholti III 8.22/fyrri 7.58

Scroll to Top