Frumtamningarnámskeið haust 2017

Í nóvember 2017 verður frumtamningarnámskeið í Spretti, kennari verður Róbert Petersen.
Námskeiðið hefst mánudaginn 6.nóv á bóklegum tíma sem verður kenndur á 2.hæð Samskipahallarinnar.
Verkleg kennsla hefst þriðjudaginn 7.nóv, kemur hver þátttakandi með sitt trippi.
Kennt verður í Samskipahöllinni.
Farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.

Atferli hestsins
Leiðtogahlutverk
Fortamning á trippi
Undirbúningur fyrir frumtamningu
Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.
Verð: 40.000.-
Kennt verður kl 17-18, 18-19, 19-20, 20-21
Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur.
Skráning mun fara fram í gegnum Sporfeng og verður auglýst síðar.
Bóklegur tími verða sameiginlegir fyrir allan hópa.
Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Fræðslunefnd Spretts.

Frumtamningartryppi
Scroll to Top