Fréttir frá stjórn Spretts

Opnir tímar eru hjá Magnúsi framkvæmdastjóra fyrir hádegi á mánudögum og milli 17-19 á miðvikudögum.

Sveinn Gaukur Jónsson hefur verið ráðinn tímabundið í hálft starf fyrir Sprett og Jóhanna Elka Geirsdóttir tímabundið sem bókara félagsins í 20% starfshlutfall.

Tekin hefur verið ákvörðum um að loka hringgerðinu við Markarveg/neðan Heimsenda vegna slysahættu en farið verður í framkvæmdir á gerðinu í vor á vegum Kópavogsbæjar ásamt endurbótum á lýsingu á félagssvæðinu.

Að gefnu tilefni eru félagsmenn hvattir til þess að tileinka sér almenna tillitssemi þar sem hestum og mönnum fer fjölgandi í hverfinu með hækkandi sól.

Scroll to Top