Á komandi aðalfundi þann 24. mars kl 20:00 verður kosið til formanns Spretts og einnig eru 3 sæti í stjórn Spretts til kjörs. Eftirfarandi félagsmenn hafa boðið sig fram til að starfa fyrir félagið okkar, annarsvegar eru þrír sem bjóða sig fram sem formenn Spretts og fimm til setu í stjórn Spretts.
Formaður
- Halldór Gunnar Victorsson
- Lilja Sigurðardóttir
- Vera Rut Ragnarsdóttir
Stjórnarmenn
- Hildigunnur Guðmundsdóttir
- Hrafnhildur Blöndahl
- Nína María Hauksdóttir
- Ragnheiður Blöndal
- Sævar Kristjánsson
Kynning á frambjóðendum munu birtast á vefnum eftir klukkan 20:00 þann 19. mars 2026.
Hér má nálgast umboðsform fyrir þá félagsmenn sem eiga ekki heimagengt á fundinn. Bendum þó á 5 grein í lögum félagsins „Umboðsmaður má einungis mæta til fundar samkvæmt umboði eins félagsmanns og er því mest hægt að fara með atkvæði tveggja félagsmanna á fundi í félaginu.“ Umboðsform
Hér kemur auglýsingin um aðalfund sem birtist á sprettur.is 10. febrúar
Boðað er til aðalfundar hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið 2025 þann 24. mars n.k. kl.20:00. Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli, veislusalnum Samskipahöll, að Hestheimum 14-16, 203 Kópavogi.
Frekari leiðbeiningar um framkvæmd fundarins og fundargögn verða send út síðar.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
4. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða af skoðunarmönnum félagsins.
5. Lagabreytingar, skv. 20. gr.
6. Kosning aðalstjórnar skv. 6. gr.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr.
8. Kosning í nefndir skv. 17. gr.
9. Ákvörðun félagsgjalds.
10. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram.
11. Önnur mál, sem félagið varðar.
