Skip to content

Fræðsluerindi Hermanns Árnasonar í Fáki

Hermann Árnason, fyrrverandi bóndi á Heiði í Mýrdal, áður Stöðvarstjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi, nú frjótæknir og hrossaræktandi á Hvolsvelli og síðast en ekki síst ferðagarpur af guðs náð ætlar að koma í heimsókn til okkar í Fák þriðjudaginn 26. mars. Þar mun hann miðla með okkur af reynslu sinni við undirbúning, þjálfun og skipulag fyrir hestaferðalög.

Hermann er gríðarlega reynslumikill þegar kemur að hestaferðum en síðasta sumar reið hann 2.200 km á 46 dögum þegar hann lauk seinni hluta Stjörnureiðar sem er reið í stjörnu þvert yfir landið í ýmsar áttir. Enginn hefur riðið allar þessar leiðir áður.

Hermann lumar ábyggilega einnig á nokkrum trixum við sundæfingar á hestum því þær eru þó nokkrar árnar sem hann hefur skellt sér yfir og hikar ekki við það.

Ekki missa af frábærum fyrirlestri kl.19:00 þriðjudaginn 26. mars í veislusalnum í Lýsishöllinni

Það verður heitt á könnunni.

Aðgangseyrir er 1500kr.