Undanfarna daga og vikur hefur farið fram vinna við að setja saman drög að dagskrá haustsins og vetrarins í Spretti.
Mörg áhugaverð námskeið verða í boði og verða drög að dagskrá birt í lok þessarar viku á heimasíðu félagsins.
Ef félagsmenn hafa óskir eða hugmyndir að námskeiðum, fyrirlestrum eða öðrum viðburðum sendið þá endilega póst á fr***********@********ar.is og reynt verður að koma til móts við þær beiðnir.