Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður í hrossarækt hjá RML mun sjá um forskoðun kynbótahrossa í Samskipahöllinni 14. mars 2026 næstkomandi frá kl. 08-15 á vegum Hrossaræktarnefndar Spretts.
Skráningargjald er kr. 3000 fyrir hross. Vinsamlegast sendið email á audur.stefansdottir(hjá)gmail.com þar sem fram kemur nafn og IS númer hests. Staðfesting á nánari tímasetningu verður síðan send þegar nær dregur viðburði. Hvetjum alla áhugasama að panta sem fyrst þar sem undanfarin ár hafa færri komist að en vilja.
