Folaldasýning Sörla 2018 – ein stærsta folaldasýning ársins ! – Skráning hafin

frár 
Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 24.febrúar á Sörlastöðum.
Sýningin byrjar kl 13:00.
Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum í hléi, meðal annars
tollar undir glæsihestana Frá frá Sandhóli, Glúm frá Dallandi, Sigur frá Stóra-Vatnsskarði og
Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum. Veitingasala verður á staðnum.

Skráningar skal senda á netfangið to*******@***il.com.
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
-Nafn folalds, uppruni og IS númer
-Nöfn móður og föður folalds
-Litur
-Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.
Greiða skal inn á reikning: 0545-26- 3615, kennitala: 640269-6509. Vinsamlegast sendið
staðfestingu á netfangið to*******@***il.com með nafn folalds sem skýringu.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 22.febrúar.
Missið ekki af þessari frábæru fjölskylduskemmtun.
glúmur frá dallandi sigur

Hlökkum til að sjá ykkur.

álfaklettur
Scroll to Top