Skip to content

Fjórir ungir Sprettarar í u-21

Á heimasíðu LH má sjá að tilkynntur hefur verið U-21 árs landslið Íslands. Í hópnum eigum við Sprettarar fjóra unga knapa! Það eru þau Hekla Rán Hannesdóttir, Herdís Björg Jóhannsdóttir, Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Sigurður Baldur Ríkharðsson. Innilega til hamingju með landsliðssætin ungu Sprettarar!

Hekla Rán Hannesdóttir, hestamannafélagið Sprettur
A-úrslita knapi í tölti ungmenna á Íslandsmóti og fjórgangi ungmenna á Íslandsmóti. Býður hest sinn Grím frá Skógarási.

Herdís Björg Jóhannsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Heimsmeistari í tölti ungmenna frá síðasta Heimsmeistaramóti.
A-úrslita knapi í slaktaumatölti ungmenna á Íslandsmóti.
Býður Kjarnveigu frá Dalsholti og Skorra frá Vöðlum.

Hulda María Sveinbjörnsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
A-úrslita knapi í fjórgangi ungmenna á Íslandsmóti og slaktaumatölti ungmenna á Íslandsmóti.
Býður hesta sína Muninn frá Bergi og Lifra frá Lindarlundi.

Sigurður Baldur Ríkharðsson, hestamannafélagið Sprettur
A-úrslitaknapi í slaktaumatölti ungmenna á Íslandsmóti.
Býður hesta sína Loft frá Traðarlandi og Trymbil frá Traðarlandi.

Úr frétt LH:
Á næsta ári er stóra verkefni landsliðsins HM íslenska hestsins í Sviss.  Þangað ætlum við með okkar allra sterkustu keppnispör frá Íslandi. Einungis sjö ungmenni verða valin til keppni og hafa tvö af þeim nú þegar unnið sér inn keppnisrétt eftir góðan árangur á síðasta Heimsmeistaramóti.

Með þetta stóra verkefni í huga mun áhersla landsliðsþjálfara á árinu 2025 vera sú að einungis sterkustu pörin (knapi og hestur) sem bjóðast hverju sinni verði í landsliðshópnum. Einnig skal landsliðsþjálfari hafa í huga góða breidd innan hópsins til að geta sent sterk pör til leiks í allar greinar. Að þessu sinni voru valin 14 pör (knapi og hestur) sem þykja skara fram úr að mati landsliðsþjálfara og bjóðast í verkefnið. Rétt er að taka fram að knapar sem ekki eru valdir að þessu sinni eiga jafn mikinn möguleika og allir aðrir til að sanna sig á undirbúningstímabili sem og á komandi keppnistímabili til að ávinna sér sæti í landsliðshópnum og fara alla leið. Landsliðsþjálfari mun fylgjast grannt með stöðu mála og ekki hika við að bæta knöpum í hópinn.

Mynd tekin af vef LH, lhhestar.is