Skip to content

Firmakeppni Spretts á sumardaginn fyrsta- 25.apríl

Firmakeppni Spretts er ein af mikilvægustu tekjuleiðum félagsins. Við ætlum að blása til sóknar fyrir félagið okkar og safna saman styrkjum og halda firmakeppnina á sumardaginn fyrsta. Þeir/þær sem vilja styrkja mótið er bent á að hafa samband við Bödda í síma 897-7517 eða Jónínu í síma 665-6222.

Skráningargjöld á firmakeppni eru engin en keppendum er frjálst að borga smá skráningargjald til styrktar félaginu. Keppt er um veglega farandbikara, auk verðlaunapeninga fyrir fimm efstu sætin. Biðlum til þeirra sem unnu farandbikara í fyrra að skila þeim inn fyrir mótið.

Skráning fer fram í anddyri veislusals Spretts milli klukkan 11-12, mótið hefst kl 13.

Boðið verður upp á keppni í eftirfarandi flokkum – í þessari röð:


Pollar – teymdir og þeir sem ríða sjálfir
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur) 

Keppt verður á beinni braut, sýnt hægt tölt og svo yfirferð að eigin vali, tölt, brokk eða skeið. Pollaflokkur og barnaflokkar verða á hringvelli.

Firmanefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg skráning í einhvern flokkanna. Hver knapi má einungis skrá sig í einn keppnisflokk. 

Keppendur eru hvattir til að sýna snyrtimennsku og mæta til leiks í sínu fínasta pússi á þessum hátíðardegi, enda verður glæsilegasta par mótsins valið að venju.

Sprettarar eru hvattir til að taka þátt í þessum skemmtilega degi – sjáumst í sumarskapi á fimmtudag!