Boðið verður upp á keppni í eftirfarandi flokkum – í þessari röð:
Kl. 14 í reiðhöll:
Pollar – teymdir og þeir sem ríða sjálfir
Kl. 14:30 á hringvellinum
Börn minna vön(10-13 ára)
Börn (10-13)
Unglingar (14-17 ára)
Ungmenni (18-21 árs)
Konur 2 (minna keppnisvanar)
Karlar 2 (minna keppnisvanir)
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur 1 (meira keppnisvanar)
Karlar 1 (meira keppnisvanir)
Opinn flokkur
Keppt verður á hringvelli, sýnt hægt tölt og svo yfirferð að eigin vali, tölt, brokk eða skeið.
Skráning og afhending númera fer fram frá klukkan 11-12 í Samskipahöllinni á fimmtudag. Engin skráningargjöld eru greidd í firmakeppni, en mótið er fyrir skuldlausa félagsmenn í Spretti eingöngu. Firmanefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg skráning í einhvern flokkanna.
Hver knapi má einungis skrá sig í einn keppnisflokk.
Keppnin hefst svo kl. 14 í reiðhöllinni með pollaflokkunum. Að þeim loknum, kl. 14:30 færist keppnin niður á Samskipavöllinn og fer keppni í öllum öðrum flokkum fram þar.
Keppt er um veglega farandbikara, auk verðlaunapeninga fyrir fimm efstu sætin.
Keppendur eru hvattir til að sýna snyrtimennsku og mæta til leiks í sínu fínasta pússi á þessum hátíðardegi, enda verður glæsilegasta par mótsins valið að venju.
Sprettarar eru hvattir til að taka þátt í þessum skemmtilega degi – sjáumst í sumarskapi á fimmtudag!