Félagshesthús Spretts veturinn 2020

Nú hefur félagshesthús Spretts opnað. Nokkur pláss eru laus í húsinu og hægt er að sækja um pláss í gegnum sp******@sp********.is

Félagshúsið er hugsað fyrir unglinga á aldrinum 12-18 ára sem ekki eru með fjölskyldum sínum í hestamennsku, unglingar sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku og eru að leita að plássi fyrir hestinn sinn.

Mánaðargjaldinu er stillt í hóf og er innifalið í því undirburður fyrir hrossið, hey og morgungjafir. Hver og einn þarf að taka þátt í hirðingu á hesthúsinu.

Ef þið vitið um ungling sem er að leita að plássi fyrir hestinn sinn endilega bendið viðkomandi á félagshús Spretts.

Í umsókninni þarf nafn,aldur og símanúmer umsækjanda að koma fram, nafn foreldris/tengiliðs, símanr og netfang.

Skrautlegur hestur
Scroll to Top