Skip to content

Félagsgjöls Spretts 2024

Nú verða félagsgjöld Spretts send út bráðlega.

Hvers vegna er mikilvægt að allir sem nýta sér aðstöðuna greiði félagsgjöld í Spretti og fyrir hvað stendur hestamannafélagið Sprettur?

Sprettur er stórt félag og í mörg horn að líta dagsdaglega. Starfsmenn félagsins eru Lilja Sigurðardóttir, framkvæmdastýra og Þórdís Anna Gylfadóttir, fræðslustýra auk þess sem Emil Tómas kom til starfa á haustmánuðum og sér um ýmis verk sem snúa að viðhaldi og umhirðu á eigum félagsins.

Í Spretti liggja reiðvegir til margra átta og hefur félagið í samstarfi við Garðabæ og Kópavog unnið að bætingu reiðvega á svæðinu.  Það þarf að viðhalda reiðvegum og bæta þá árlega.

Sprettur stendur fyrir öflugu fræðslu og æskulýðsstarfi. 

Margskonar námskeið eru í boði hjá félaginu fyrir fólk á öllum aldri.

Sprettur rekur félagshesthús sem er ætlað unglingum á aldrinum 12-18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni en koma ekki úr hestafjölskyldum, þannig m.a. stuðlum við að nýliðun.

Sprettur lætur ryðja snjó af reiðvegum eftir því sem kostur gefst með tilliti til veðurs og veðurspár til þess að létta útreiðafólki að stunda þjálfun hesta sinna.

Sprettur stendur fyrir margskonar viðburðum t.d Þorrablóti, Árshátíð, Bingókvöldi, sýnikennslum, fyrirlestrum, bíókvöldum, spilakvöldum ofl.

Sprettur stendur fyrir reglulegum hópreiðtúrum sem farnir eru á laugardögum ef veður og færð leyfir.

Sprettur stendur fyrir ýmiss konar mótahaldi t.d er haldið Þrígangsmót, Vetarleikar, Blue-Lagoondeild,(fyrir börn og unglinga) Firmamót, Íþróttamót, Gæðingamót og Áhugamannadeild, 1.deildin.

Á Spretts svæðinu eru 7 hringgerði og einnig 3 þjálfunargerði sem eru 20-40m að stærð

Á Spretts svæðinu eru keppnisvellir sem þarf að viðhalda.

Á Spretts svæðinu er rekstarhringur sem félagsmenn geta nýtt sér.

Á Spretts svæðinu hafa verið girt fjölmörg viðrunarhólf sem skuldlausir félagsmenn geta sótt um á hverju vori, miðað er við eitt hólf pr hús/einingu.

Sprettur rekur tvær reiðhallir Húsasmiðjuhöllina og Samskipahöllina þar sem félagsmenn geta keypt aðgangslykla til að þjálfa innandyra. Hægt er að leigja 1-3 hólf í Samskipahöllinni eða Húsasmiðjuhöllina til einkanotkunar. Til þess að fá lykil eða leigja hólf hafið sambandi í gegnum sprettur@sprettarar.is 

Veislusalur Spretts, Arnarfell er í Samskipahöllinni þar eru ýmsir viðburðir haldnir á vegum félagsins, salinn er hægt að leigja fyrir einkaviðburði upplýsingar fást í gegnum skrifstofa@sprettarar.is 

Þó þetta sé nú heilmikil upptalning þá er þessi listi ekki tæmandi enda eins og fyrr segir að á stóru heimili er að mörgu að huga.

Ef þú og fjölskylda þín eruð ekki nú þegar félagi í Spretti en eigið hesthús og/eða leigir pláss í hverfinu og þið stundið ykkar hestamennsku á svæðinu og nýtið þar með aðstöðu og þjónustu félagsins hvetjum við ykkur til að skrá ykkur í félagið, hægt er að senda póst á sprettur@sprettarar.is þar þarf nafn, kennitala, netfang og símanúmer að koma fram.

Félagsgjöld 2024.

Reikningarnir verða eingöngu rafrænir hægt verður að finna þá undir rafrænum skjölum í netbanka félagsmanna.

Fullorðnir (22 – 67 ára fæddir 2002-1957):  19.500 

Ungmenni (18 – 21 árs fædd 2006-2003):  7.000 

Eldri borgarar:  19.500 valfrjálst (1957og eldri)

Öryrkjar:  7.000

Vinir Spretts:  12.000

Undir 18 ára:  frítt