Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 12. til 20. júlí.
Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Þetta er einnig frábært tækifæri til kynnast ungum og efnilegum knöpum frá öðrum löndum. Umsóknarfrestur er 20. mars.
Nánari upplýsingar hér: https://www.lh.is/feif-youth-cup-2026
