Erla Guðný og Fluga frá Garðabæ sigruðu Eiðfaxa TV fjórganginn – Staðan eftir fyrstu grein

Fyrsta keppnisgrein vetrarins, Eiðfaxa TV fjórgangurinn, í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts fór fram fimmtudaginn síðastliðinn.
Það var frábær mæting í höllina um kvöldið og mörg sem gæddu sér á glæsilegu hlaðborði töfrað fram af snilldarkokkunum hjá Flóru. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína í Samskipahöllina kærlega fyrir komuna.

Dregið var úr sjálfboðaliðum kvöldsins og gaf Sprettur 7500 kr gjafabréf í Lífland. Það var Gestur Guðjónsson sem hreppti hnossið í þetta skipti. Hann er einn af innköllurunum hjá okkur sem sjá um að öll mæti í braut á réttum tíma.
Svona kvöld gætu ekki farið fram án öflugra sjálfboðaliða, við þökkum öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd mótsins kærlega fyrir.

Það voru þær Erla Guðný Gylfadóttir og glæsihryssan Fluga frá Garðabæ sem leiddu eftir forkeppnina og gáfu þær ekkert eftir í úrslitunum og tryggðu sér gullið með einkunnina 6,83.
Í öðru sæti voru Darri Gunnarsson og Draumur frá Breiðsstöðum og í því þriðja sigurvegari síðasta árs, með nýjan hest í þetta skiptið, Kristín Ingólfsdóttir og Blakkur frá Skeiðvöllum.
Eiðfaxi TV veitti glæsileg aukaverðlaun. 3 sæti hlaut 3 mánaða áskrift af Eiðfaxa TV, 2. sæti vikupassa á Landsmót 2026 á Hólum í Hjaltadal og efsta sæti ársáskrift að Eiðfaxa TV að verðmæti 49.900. Þökkum við Eiðfaxa TV kærlega fyrir það.

 

Erla Guðný Gylfadóttir og Fluga frá Garðabæ – Mynd Gunnhildur Ýrr
Erla Guðný, Darri og Kristín. Verðlaun veittu Magnús Benediktsson framkvæmdastjóri Eiðfaxa TV, Selma Rut Gestsdóttir og Sigríður Helga Sigurðardóttir f.h. stjórnar Áhugamannadeildarinnar – Mynd Gunnhildur Ýrr

Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir og Hnokki frá Áslandi stóðu uppi sem sigurvegarar í B-úrslitum með einkunnina 6,47

Í liðakeppninni var það liðið Fossvélar sem voru hlutskörpust, auk Erlu Guðnýjar kepptu þær Þórdís Sigurðardóttir sem komst í B-úrslit og Theódóra Þorvaldsdóttir sem var rétt utan B-úrslita. Aðrir liðsmenn eru Gunnar Már Þórðarson og Þórunn Kristjánsdóttir (vantar á mynd)

Lið Fossvéla hlaut liðaplattann eftirsótta – Mynd Gunnhildur Ýrr

 

Staðan í liða- og einstaklingskeppni er eftirfarandi eftir fyrstu grein:

 

Staðan í einstaklingskeppninni
Staðan í liðakeppninni

 

Næst verður keppt í slaktaumatölti í boði Sveiflu. Keppni fer fram 5. mars. Hlökkum til að sjá ykkur þá !

Höfundur fréttar: Selma Rut Gestsdóttir

Scroll to Top