Vegna forfalla losnaði eitt pláss í Félagshesthúsi Spretts. Umsóknir berast á [email protected]
Félagshesthús Spretts er staðsett neðst í Heimsenda, í húsinu eru 5-6 pláss fyrir unglinga sem langar að stíga sín fyrstu skref í að halda hest.
Húsið er hugsað fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku og hafa ekki tengingu inn í hesthús hjá fjölskyldu eða vinum.
Við hvetjum þau sem eru með pláss í hesthúsinu til þess að sækja námskeið hjá hmf.Spretti, td mælum við með knapamerkjunum fyrir alla.
Þau sem fá pláss í húsinu verða að koma með eigin hest og allan búnað tengt hestinum, hmf. Sprettur skaffar ekki hesta eða búnað. Hægt er að nýta frístundastyrki bæjarfélaganna við greiðslu á plássi fyrir hestinn.
Skilyrði fyrir umsókn:
- Sá aðili sem sótt er um fyrir sé milli 10-18 ára aldurs. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
- Sá aðili sem sækir um hefur hug á að taka virkan þátt í félagshesthúsi Spretts, sinnir sínum hesti daglega og tekur þátt í að vinna þau verk sem þarf að vinna í félagshesthúsinu.
- Mánaðargjald per hest er 30.000 krónur. Innifalið er morgungjafir, hey og undirburður.
- Allir umsækjendur fá póst hvort þeim hafi verið úthlutað plássi eða ekki.
- Barn/unglingur verður skráð í hestamannafélagið Sprett ef það er ekki félagi fyrir.
- Í upphafi tímabils mun verða skrifað undir samning milli barns/unglings/forráðamanns og Spretts varðandi umgegni, framkomu og viðveru í húsinu.