Reiðkennarinn og Sprettarinn Þorvaldur Árni Þorvaldsson býður upp á einkatíma í Húsasmiðjuhöll. Kennt verður á mánudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 27.apríl og lýkur 18.maí, samtals 4 skipti. Einungis 4 pláss í boði, kennt frá kl.17:00 til 19:40.
Tímarnir henta fjölbreyttum hópi hesta og knapa, en Þorvaldur mun mæta hverjum og einum þar sem þeir eru staddir og aðstoða við að koma þeim lengra.
Námskeiðið er ætlað skuldlausum félagsmönnum hestamannafélagsins Spretts. ATH! að plássið er ekki tryggt fyrr en greitt hefur verið fyrir námskeiðið í abler.io.
Verð er 66.000kr. Ef ungir Sprettarar skrá sig, þá er best að greiða með greiðsluseðli, sem verður svo leiðréttur (þar sem ungir Sprettarar greiða ekki fyrir reiðhallargjald). Gott að senda einnig póst á th*****@******ur.is og láta vita.
Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og opnar föstudaginn 24.apríl kl.12:00.
