Einkatímar hjá Þorvaldi Árna

Reiðkennarinn og Sprettarinn Þorvaldur Árni Þorvaldsson býður upp á einkatíma í Hattarvallahöll. Kennt verður á þriðjudögum.

Í boði er:
– 6 skipta námskeið. Kennsla hefst þriðjudaginn 21.apríl og lýkur 26.maí. Verð er 99.000kr fyrir fullorðna. 78.500kr fyrir yngri flokka.

Tímarnir henta fjölbreyttum hópi hesta og knapa, en Þorvaldur mun mæta hverjum og einum þar sem þeir eru staddir og aðstoða við að koma þeim lengra.

Skráning hefst laugardaginn 11.apríl kl.12:00 og fer fram á abler.io/shop/hfsprettur
Skuldlausir félagsmenn hestamannfélagsins Spretts ganga fyrir á námskeið sem haldin eru á vegum félagsins.

Scroll to Top