Reiðkennarinn og Sprettarinn Þorvaldur Árni Þorvaldsson býður upp á einkatíma í Hattarvallahöll. Kennt verður á þriðjudögum.
Kennsla hefst þriðjudaginn 3.mars og lýkur 7.apríl. 6 einkatímar.
Verð er 99.000kr fyrir fullorðna. 78.500kr fyrir yngri flokka.
Tímarnir henta fjölbreyttum hópi hesta og knapa en Þorvaldur mun mæta hverjum og einum þar sem þeir eru staddir og aðstoðar við að koma þeim lengra.
Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og opnar laugardaginn 21.febrúar kl.12:00.
