Sprettarinn og reiðkennarinn Guðrún Margrét Valsteinsdóttir býður upp á almennt reiðnámskeið þar sem gerð verða markmið sem henta hverjum nemanda með sinn hest. Markmið geta því verið fjölbreytt eftir hverju pari og fleiri en eitt hjá hverju pari. Þess vegna er þetta námskeið opið öllum, frá byrjendum til reynslubolta, keppnisknöpum sem stefna á mót og þeirra sem vilja gera reiðhestinn sinn betri og auka skilning milli knapa og hests.
Stefnt er að því að kenna inn í apríl og fram í byrjun maí en færa sig svo út á reiðvöll fyrir þá sem vilja.
Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum og hefst 8.apríl. Kennt verður í Samskipahöll. 30mín einkatímar. 6 skipti samtals.
Verð fyrir fullorðna er 43.000kr
Verð fyrir yngri flokka er 31.000kr
Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og opnar þriðjudaginn 24.mars kl.12:00.
