Skip to content

Einkatímar hjá Antoni Páli

Reiðkennarinn Anton Páll Níelsson býður upp á einkatíma í desember.

Um er að ræða tvo einkatíma sem kenndir eru miðvikudaginn 13.des og miðvikudaginn 20.des. 
Kennt verður í Samskipahöll hólf 3. Kennsla fer fram milli kl.9-17.  Verð er 35.000kr.

Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.000kr. Knapar í yngri flokkum skrá sig með því að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.