Skip to content

Einkatímar hjá Antoni

Anton Páll Níelsson reiðkennari verður með einkatíma miðvikudagana 15.nóv og 22.nóv nk. í Samskipahöllinni. Í boði eru tímar frá kl.9-17. Kennt verður í 45mín einkatímum hvorn dag fyrir sig. Verð er 35.000kr. Skráning er opin og fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur.

Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.000kr. Knapar í yngri flokkum skrá sig með sama hætti og fullorðnir en velja að greiða með greiðsluseðli og munu þá í kjölfarið fá rétta upphæð til greiðslu í heimabanka. Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.