Dymbilvikusýning Spretts 8.apríl 2020

Nú styttist óðum í hina árlegu Dymbilvikusýningu Spretts sem fram fer í Samskipahöllinni
miðvikudaginn 8. Apríl, kvöldið fyrir skírdag að venju. 

Ræktunarhross skipa stóran sess á sýningunni líkt og undanfarin ár, en boðið verður upp á sýningar ræktunarbúa, úrvals hryssur og stóðhesta, ræktunarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Heiðraðir verða íþróttarknapar Spretts 2019  Íslandsmeistararar 2019. Ungir og aldnir munu koma fram.

Undirbúningur er í fullum gangi þessa dagana og enn geta ræktendur, hesteigendur og knapar haft samband vilji þeir leggja sýningunni lið með skemmtilegum og flottum atriðum.

Hægt er að hafa samband í eftirfarandi símanúmer eða á tölvupósti.

896 9740 Rúnar / ru****@la******.is

620-4500 Lilja / sp******@sp********.is

Dymbilvikusýning 2020