Nú styttist óðfluga í Dymbilvikusýningu Spretts 2022.
Sýningin verður þann 27.mars næstkomandi.
Við munum eins og undanfarin ár halda létta keppni milli nágranna hestamannafélaganna um flottustu ræktunarhesta sem hafa fæðst hjá félagsmönnum í hverju félagi.
Ýmis ræktunarbú munu koma fram með hross, yngri kynslóðin í Spretti sýnir sig.
Íþróttafólk Spretts verður heiðrað ofl ofl ofl.
Ef Sprettarar hafa áhuga á að koma fram með hesta frá sér þá vinsamlega hafið samband á [email protected] eða í síma 620-4500
Húsið opnar kl 18:00
Sýningin hefst kl 20:00
Hægt verður að kaupa mat og drykk.
Miðaverð inn á sýninguna 2000kr, selt við innganginn.
Hlökkum til að sjá ykkur