DYMBILVIKUSÝNING SPRETTS 16.apríl 2025!

Hin árlega sýning hestamannafélagsins Spretts, Dymbilvikusýningin, fer fram 16.apríl nk. í Samskipahöllinni.
Sýningarnefnd hefur tekið til starfa og er sem áður stórhuga og stefnir allt í stórskemmtilega sýningu. Eins og undanfarin ár verður haldin létt keppni milli nágranna hestamannafélaganna um flottustu ræktunarhestana. Heyrst hefur að mögulega muni fjölga í hópi “nágranna” og fleiri hestamannafélög mundi senda sína fulltrúa á sýninguna.
Ungir Sprettarar ætla að mæta á svæðið og halda uppi stuðinu, Íþróttafólk Spretts, Töltgrúppa Spretts, kynbótahross, ræktunarbú, létt grínatriði o.m.fl. Sýningaratriði verða kynnt betur þegar nær dregur.
Ef Sprettarar hafa áhuga á að koma fram með hesta frá sér þá vinsamlegast hafið samband á dy**************@******ur.is
Húsið opnar kl 18:00
Sýningin hefst kl 20:00
Hægt verður að kaupa mat og drykk.
Miðaverð inn á sýninguna 2000kr, selt við innganginn.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Scroll to Top