Dymbilvikusýning 1. apríl 2026

Hin árlega sýning hestamannafélagsins Spretts, Dymbilvikusýningin, fer fram 1. apríl nk. í Samskipahöllinni.

Sprettskórinn mun hita félagsmenn upp fyrir sýninguna, ungir Sprettarar  mæta á svæðið ásamt Töltgrúppu Spretts, kynbótahrossum, ræktunarbúum, íþróttafólk Spretts, gestum frá öðrum félögum og fleira. Sýningaratriði verða kynnt betur á næstu dögum.

Ef Sprettarar hafa áhuga á að koma fram með hesta frá sér þá vinsamlegast hafið samband á dymbilvikusyning(hja)sprettur.is

Ljúffengt lambalæri og með því verður á boðstólum fyrir kr. 3500 frá kl. 18:00
Sprettskórinn syngur í veislusalnum frá 19:30
Sýning sett kl 20:00
Miðaverð inn á sýninguna er kr. 2000, selt við innganginn.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Scroll to Top