Breyting á gjaldskrá SORPU – Hrossatað

SORPA hefur sent frá sér tilkynningu um að auglýst verð um móttöku hrossataðs sem birtist á vef þeirra þann 14.maí hafi verið mistök og ekki samkvæmt samþykkt stjórnar.
Ný verðskrá  hefur verið gefin út og er nú sama verð fyrir hvert hlass af taði sem berst í móttökustöð SORPU í Álfsnesi og er það kr. 31.000 óháð magni.
Það er því sama verð kr. 31.000 fyrir það að losa kerru og stóran flutningabíl. Verðið sem var útgefið 14.maí er sambærilegt fyrir stærstu farmana.
Fulltrúar Spretts hafa mótmælt þessum breytingum en SORPA telur þetta henta þeim best og vilja fá sem stærst hlöss.
Scroll to Top